Þjóðarsálin: Mótmælendur

Lögreglan reynir að stöðva GM

Það var ákveðið á síðasta stjórnarfundi Dalla Group að reyna gera Þjóðarsálina að vikulegum pistli þar sem þemað er að kvarta yfir hlutunum, svona í anda gömlu Þjóðarsálarinnar sem var á dagskrá Rásar 2 hér á árum áður. Það má hins vegar deila um hversu góðar undirtektirnar voru við fyrstu Þjóðarsálinni ef að tekið er mið af athugasemdunum við þá færslu. Einu athugasemdirnar voru deilur milli Stebba og Bjarna, en það er reyndar alveg í anda þjóðarsálarinnar og ekki verra að vera með óþarfa tuð í kommentadálknum eins og Bjöllanum tókst svo vel til í Pizza Hut færslunni.

Að þessu sinni viljum við Dallafrændur kvarta yfir Dr.GM og öðrum svokölluðum mótmælendum. En eins og flestir vita fór Doktorinn á Sigurrósar tónleikana í Ásbyrgi um verslunarmannahelgina. Hann fór austurleiðina heim og kom við á Kárahnjúkum og er meðfylgjandi mynd þaðan, á henni má sjá lögregluna á Reyðarfirði reyna að hafa hemil á doktornum.

Til að kynna sér gaumgæfilega heim mótmælenda fóru Dallamanna til Helga Hóseassonar, eina atvinnumótmælenda Íslands, en hann undirbýr nú óvenju kraftmikla herferð gegn því illa í heiminum. Að þessu sinni segist Helgi aðallega ætla að beita herferðinni á Langholtsveginum og berja landsmönnum baráttuhug í brjóst, ef ekki þá skvetta á menn baráttuhuginn enda búinn að koma upp heilli geymslu af skyri fyrir herferðina góðu. Þegar Dallamenn reyndu að ná af frekara honum tali gargaði Helgi einkunnarorð herferðinnar nýju en hér má sjá mynd af honum með skiltið góða. Dalli vill því eindregið benda þessum amatörum fyrir austan að læra af meistaranum mótmæla einhverju sem skiptir máli og bæta við nokkrum skyrskvettum ef illa gengur. Það hefur engan drepið, svo er skyrið líka svo hollt. Myndin af nýja slagorðinu má sjá hér að neðst ef ýtt er á linkinn "fleiri myndir"

Megnið af þessum mótmælendum ku vera Skotar og ekki er ólíklegt að þetta sé eitthvað lið sem að Dr.GM hefur dregið með sér þaðan. Þeir örfáu Íslendingar sem þarna eru hafa örugglega fæstir séð Kárahnjúka áður og örugglega varla vitað hvað Kárahnjúkar voru, efast um að þeir hafa farið út úr póstnúmeri 101. Hvernig væri fyrir þetta lið að leggja hasspípunni og fara að fá sér vinnu, taka sér félaga sinn Dr.GM til fyrirmyndar sem vinnur eins og enginn sé morgundagurinn og getur samt mótmælt. Einhverjir kynnu þó að kalla Dr.GM frístundamótmælenda en við hlustum ekki á svoleiðis.

Að vísu hefur minna borið á þessu pakki undanfarna daga, en með hverjum rólegum deginum sem líður þá styttist í að ná þurfa í GM og skoska gólfbræður hans enn eina ferðina uppí krana. Doktornum til varnar þá fer hann ekki uppí hvaða krana sem er heldur bara tegundir sem honum líkar vel við en hann hefur oft verið staðinn af því að neita vegna þess að hann vill ekki fara í svona “djöfulsins drasl”.

Mótmælendurnir kvörtuðu mikið yfir harðræði lögreglunnar, að lögreglunni hafi dirfst að ýta í þá eða handtaka þegar þau neituðu að verða við skipunum löggunar. Einna harðast í þeim ásökunum gekk lögfræðingurinn Ragnar Aðalsteinsson sem tíndi til einhver atvik án þess að hafa þau í neinu samhengi, hann flutti einnig lygasögur frá mótmælendunum sjálfum og var engu líkara en hann hefði bara verið á staðnum sem hann var auðvitað ekki. Það er það sama með hann og Doug Ellis fyrrverandi eiganda Aston Villa, þeir eru orðnir allt of gamlir og ruglaðir fyrir þetta.

Af hverju geta þessir mótmælendur ekki bara farið til Íraks og mótmælt þar, spurning hvort að þeir myndu ekki týna tölunni einn af öðrum.

Hvernig væri það að fara þarna austur og mótmæla mótmælunum? Gætu mótmælendurnir verið eitthvað fúlir út af því? Bara svona pæling, greinilega einhverjir fleiri sem hafa pælt í því, grípum hér niðrí frétt af austurlandid.is (http://www.austurlandid.is/?frett_id=401) : Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins sátu tveir úr hópnum Saving Iceland við veginn um 500 metra frá álverslóðinni og fylgdust með félögum sínum uppi í kranabómunum. Þá kom að bíll og fólk í bílnum gerði sér lítið fyrir og hellti úr 2 lítra Kókflösku yfir mótmælendurna og ók síðan áfram. Þetta verður að teljast nokkuð gott framtak og er eitthvað sem að aðrir mættu taka sér til fyrirmyndar.

Við Dallamenn viljum mótmæla mótmælendunum og endum á orðum Helga Hós því til stuðnings. (endilega kíkið á snillinginn hér að neðan undir "fleiri myndir")

“Krosslafur blæti RÍÓ smollin kríaði mömmu sína!”

Lifið heil.

Dallamenn


Helgi Hóseasson með sín mál á hreinu

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband