Þriðjudagur, 10. apríl 2007
Endurvakning Dallans
Eftir einróma ályktun á stjórnafundi fyrr í dag var sú ákvörðun tekin að vekja dallan upp af vetrardvalanum, setja hann í sumarbúning og hefjast handa við að afla honum fyrri vinsælda.
Það verður strax farið í gangasöfnun um líðandi páskahelgi, enda áttu sér þar stað mörg atvik sem mætti telja til svokallaðra lögreglumála eins og Einar Bárðarson er búinn að nefna í hverjum einasta idol og xfactor þætti síðan að varð dómari þar.
Einnig er planið að henda inn fljótlega kynningu á sjálfum Dalla frænda, það eru fjöldamargir fastagestir á dallanum sem að vita ekki hver Dalli frændi er. Það er ómögulegt að svo sé.
Við vonum bara að þessi endurvakning á dallanum skyggi ekki um of á komandi alþingiskosningar sem í nánd eru, að menn passi sig á því að gleyma sér ekki á dallanum og drífi sig á kjörstað þegar að því kemur.
Sýsli og Sleggi
Athugasemdir
ánægður með þetta...
elvar (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 21:20
Gott framtak
Bjarni (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 21:28
Þrefalt húrra.
Hef aldrei vitað um neinn sem er jafn sólginn í mandarínur og hann Dalli frændi þinn. Eðalmaður þar á ferð!
Úlfur (IP-tala skráð) 10.4.2007 kl. 21:46
Þetta líst mér vel á. Vonandi að maður fái fleirri færslur um Óskönnu.
Gunnar Hrafn Arnarsson, 11.4.2007 kl. 00:23
þetta líst mér bara fjandi vel á.....
Raggi (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 09:33
Hann er nú meira fyrir Súbway
Mr.Brúnkóvic (IP-tala skráð) 11.4.2007 kl. 16:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.